Miðar á leik Stjörnunnar og pólska liðsins Lech Poznan sem fer fram annað kvöld á Samsung-vellinum í Garðabæ í 3. umferð Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu seldust upp á klukkutíma.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu KSÍ tekur völlurinn 990 manns í sæti og þar af fengu stuðningsmenn Lech Poznan 160 miða. Miðarnir sem Pólverjarnir fengu seldust upp á 15 mínútum. Von er á mikilli stemningu líkt og þegar Stjarnan sló út Motherwell frá Skotlandi í síðustu umferð eftir mikla dramatík.