Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnismanna, var að vonum kampakátur eftir góðan 3:1 útisigur á Frömurum á Laugardalsvelli í kvöld. Fjölnir lék á als oddi í þessum botnbaráttuslag og fór illa með lánlausa Framara.
Ágúst var ekki síður ánægður með stuðninginn sem liðið fékk í kvöld frá Grafarvogsbúum.„Það var frábær karakter og frábær stuðningur sem skóp þennan sigur í kvöld,“ voru fyrstu orð Ágústs við fjölmiðla að leik loknum. „Við sýndum sjálfstraust strax frá fyrstu mínútu og héldum boltanum vel. Sigurinn í dag er kærkominn.“
Ágúst sagðist hafa brýnt fyrir sínum mönnum að sýna þolinmæði í leiknum í kvöld. „Við vissum að Framarar kæmu nokkuð ofarlega á okkur, sem þeir gerðu, og við náðum stundum að spila þá út. Við lögðum upp með að vera þolinmóðir og spila okkar leik.“
Í þeirri hörðu botnbaráttu sem framundan er segist Ágúst aðeins geta treyst á frammistöðu sinna manna. „Við munum treysta á okkur. Ef við erum í lagi, þá uppskerum við. Okkar markmið er að halda okkur í deildinni. Við erum ekki sloppnir og erum enn með í baráttunni. Við setjum botnbaráttuna í uppnám með sigri í dag eins og margir hafa rætt um.“
Fjölnir situr í 9. sæti deildarinnar með 19 stig en Framarar eru komnir aftur í fallsæti, stigi á eftir Fjölni og Keflvíkingum, sem eru í 10. sæti. Næsti leikur Fjölnis er á sunnudaginn en þá taka þeir gulklæddu á móti ósigruðum Stjörnumönnum.
„Það verður mjög erfitt,“ sagði Ágúst um Stjörnuleikinn. „Þetta verður eflaust hörkuleikur á milli tveggja góðra liða. Það eru þrír erfiðir leikir eftir sem við verðum að fá eitthvað út úr. Við munum mæta með mikið sjálfstraust og höfum allt að vinna.“