Íslandsmeistarar Stjörnunnar mæta Breiðabliki í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins eftir að hafa unnið ÍBV 2:1 í kvöld í lokaleik 2. riðils.
ÍBV komst yfir í leiknum með marki Bjarna Gunnarssonar en Þórhallur Kári Knútsson jafnaði metin í fyrri hálfleiknum og Arnar Már Björgvinsson skoraði sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik.
Stjarnan fór með sigrinum upp fyrir ÍBV og Keflavík og tryggði sér 1. sæti riðilsins.