Kolbeinn Sigþórsson skoraði eitt mark á þeim 28 mínútum sem hann lék þegar Ajax, lið hans, gerði 1:1 jafntefli við Zwolle á útivelli í dag.
Zwolle komst yfir á 48. mínútu en Kolbeinn jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka. Ajax er í 2. sæti deildarinnar með 68 stig meðan Zwolle er í 7. sæti með 47 stig. PSV hefur þegar tryggt sér hollenska meistaratitilinn.