Serbnesk landsliðskona í Val

Valskonur fagna í sumar.
Valskonur fagna í sumar. Eggert Jóhannesson

Kvennalið Vals í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu hefur fengið til liðs við sig serbnesku landsliðskonuna Mariju Raojicic.

Marija, sem er 23 ára gömul og leikur sem framherji, er komin með leikheimild hjá Val en hún spilaði síðast í Austurríki. 

Hún lék meðal annars með Serbíu í 9:1 tapi gegn Íslandi í kveðjuleik Þóru B. Helgadóttur, markvarðar, með landsliðinu í september árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert