Willum Þór Þórsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild KR um að stýra karlaliði félagsins út tímabilið.
Willum Þór tekur við liðinu af Bjarna Guðjónssyni og Guðmundi Benediktssyni sem sagt var upp störfum í vikunni.
Arnar Gunnlaugsson verður Willum Þór til aðstoðar hjá KR, en samningur þeirra beggja við KR gildir út yfirstandandi leiktíð.