Þremur leikjum var að ljúka í 1. deild karla í knattspyrnu en Selfoss og Grindavík gerðu 1:1 jafntefli á meðan Keflavík vann Hauka 1:0. Leiknismenn unnu þá Fram með sigurmarki undir lok leiks.
Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar af úrslitaþjónustu Úrslit.net.
Selfoss og Grindavík gerðu 1:1 jafntefli á Jáverk-vellinum á Selfossi í dag. Alexander Veigar Þórarinsson kom Grindvíkingum yfir á 72. mínútu og var útlit fyrir að Grindavík kæmist nær sæti í Pepsi-deildinni en markvörður Grindvíkinga, Kristijan Jajalo, kom í veg fyrir að það myndi gerast.
Hann fór í furðuleg skógarhlaup þegar það kom hár bolti inn í teig og kýldi frá sér. Dómari leiksins dæmdi vítí í kjölfarið sem Ivan Martinez skoraði úr. Á meðan vann Keflavík lið Hauka 1:0 en það var Frans Elvarsson sem skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik.
Leiknir R. vann þá Fram 2:1. Ólafur Hrannar Kristjánsson kom Leikni yfir á 58. mínútu áður en Orri Gunnarsson jafnaði á 81. mínútu. Sindri Björnsson tryggði svo Leiknismönnum sigurinn á 87. mínútu og þar við sat.
Grindavík er áfram í efsta sæti deildarinnar með 38 stig eftir átján umferðir en KA kemur næst með 36 stig. Keflavík er í þriðja sætinu með 29 stig á enn möguleika á sæti í Pepsi-deildinni. Leiknir er í fjórða sæti með 27 stig og Fram í áttunda sæti með 22 stig.
Úrslit kvöldsins:
Leiknir R. 2:1 Fram
Selfoss 1:1 Grindavík
Keflavík 1:0 Haukar
Fylgst verður með gangi mála hér á mbl.is.
Leik lokið. Keflavík fer með sigur af hólmi og á enn smá von um sæti í Pepsi-deildinni. Það var markvörður Grindvíkinga sem kom í veg fyrir að liðið sigraði Selfoss í dag.
87. MAAAAARK!!! Leiknir R. 2:1 Fram. Sindri Björnsson tryggir Leiknismönnum sigurinn í Breiðholtinu.
81. MAAAARK!!! Leiknir R. 1:1 Fram. Orri Gunnarsson að jafna metin fyrir Fram.
86. MAAAAARK!!! Selfoss 1:1 Grindavík. Martinez að skora fyrir Selfoss. Öruggt og þægilegt.
85. VÍTI!!! Selfoss 0:1 Grindavík. Markvörður Grindvíkinga í ruglinu. Það kemur hár bolti inn í teig og Jajalo hleypur í eitthvað skógarhlaup og kýlir í átt að leikmanni Selfyssinga. Víti dæmt.
72. MAAAAAARK!!!! Selfoss 0:1 Grindavík. Alexander Veigar Þórarinsson að koma gestunum yfir. Ef Grindavík vinnur þennan leik þá er liðið svo gott sem komið í þessa blessuðu Pepsi-deild.
58. MAAAAARK!!! Leiknir R. 1:0 Fram. Ólafur Hrannar Kristjánsson að koma Leiknismönnum yfir þegar hálftími er eftir.
Hálfleikur.
17. MAAAAAARK!!! Keflavík 1:0 Haukar. Frans Elvarsson að koma Keflvíkingum yfir. Nú vonast heimamenn væntanlega til þess að Selfyssingar geri gott mót gegn Grindvíkingum.
17. Selfoss 0:0 Grindavík. VÍTI?? Grindvíkingar keyrðu í sókn. Sýndist þetta vera Josiel Alves De Oliveira sem tók snúninginn inn í teig og var síðan tekinn niður. Maður hefur séð dómara dæma víti á þetta.
1. Leikirnir eru komnir af stað.
0. Lýsingin verður uppfærð hér að ofan.