„Við erum ekki hættir,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Reykjavíkur-Víkings eftir 2:0 tap fyrir ÍA í 17. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.
Með tapinu eru möguleikar Víkinga á Evrópusæti orðnir litlir. „Já þeir eru ekki miklir, en þó enn til staðar. Það eru 15 stig eftir í pottinum og við erum ekki hættir,“ sagði þjálfarinn.
Hann var ekki ánægður með sína menn í gær og sagði að um leið og liðið væri komið 500 metra frá Víkinni þá gengi ekkert hjá því. „Við vorum slakir og sigur ÍA mjög sanngjarn,“ sagði Milos.