Orri Sigurður Ómarsson, miðvörðurinn sterki í liði bikarmeistara Vals í knattspyrnu, er til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Vålerenga.
Orri Sigurðsson er við æfingar með norska liðinu í æfingaferð þess á Marbeilla á Spáni en hann er einn þriggja leikmanna sem Vålerenga er með til reynslu í ferðinni. Orri Sigurður hefur verið fastamaður í Valsliðinu frá því hann kom til þess frá danska liðinu AGF fyrir tímabilið 2015.