Fram og Selfoss tryggðu sér í kvöld sæti í 32ja liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Borgunarbikarsins, eftir mjög ólíka leiki.
Fram sótti heim annað 1. deildarlið, HK, í Kórinn í Kópavogi og hafði þar 1:0 sigur. Sigurpáll Melberg Pálsson skoraði sigurmarkið seint í fyrri hálfleik, samkvæmt fótbolta.net.
Alfi Lacalle skoraði fjögur mörk fyrir Selfyssinga sem unnu stórsigur á 4. deildarliði Kormáks/Hvatar, 8:0, á Selfossi. James Mack skoraði tvö mörk og þeir Ivan Martínnez og Elvar Ingi Vignisson gerðu eitt mark hvor.
Áður hafði Magni úr 2. deild tryggt sér sæti í 32ja liða úrslitum með því að vinna utandeildalið Nökkva á Akureyri, 5:1, en aðrir leikir í 2. umferð eru leiknir um helgina.