Fyrsti leikurinn í 14. umferð Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld þegar Fram fær Leikni Reykjavík í heimsókn.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Frömurum frá því Portúgalinn Pedro Hipólító tók við þjálfun Fram-liðsins eftir að Ásmundi Arnarssyni var sagt upp störfum.
Framarar hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum undir stjórn Portúgalans og eru þeir í 9. sæti deildarinnar með 15 stig en Leiknismenn eru sætinu fyrir ofan með 17 stig.
Flautað verður til leiks í Laugardalnum klukkan 19.15 og verður fylgst með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.