„Það er þungt yfir okkur núna og sex leikir eftir en við höldum áfram á meðan tölfræðilega er möguleiki,“ sagði Garðar Gunnlaugsson, fyrirliði Skagamanna, eftir 1:0 tap fyrir ÍBV á Skipaskaga í dag og þeir sitja fyrir vikið aleinir á botni deildarinnar.
„Það var einhver doði yfir þessu hjá okkur og það var ekki fyrr en í lokin að við fórum að setja almennilega pressu á Eyjamenn og hefðum jafnvel mátt gera það fyrr, setja þá þessa löngu sendingar inn á þá og þó að það sé ekki fallegt þá skilar það sínu. Þetta er ekki búið og við höldum áfram þar til yfir lýkur.“