Þór/KA fær í dag tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitil kvenna í knattspyrnu í annað skipti en fjórir síðari leikirnir í 17. og næstsíðustu umferð hefjast allir klukkan 14.
Akureyrarkonur mæta þá til Grindavíkur og með sigri í þeim leik er titillinn í höfn fyrir lokaumferðina, en þá á Þór/KA heimaleik gegn FH. Stephany Mayor hefur skorað 17 mörk í 16 leikjum Þór/KA og er líklegust til að verða markadrottning deildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið.
Breiðablik er eina liðið sem getur náð titlinum af Þór/KA. Blikakonur sækja Stjörnuna heim í dag, og vinni þær ekki leikinn er Þór/KA meistari, sama hvernig fer í Grindavík. Breiðablik á svo heimaleik við Grindavík í lokaumferðinni.