Breiðablik er úr leik í Evrópukeppni ungmennaliða í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn pólska liðinu Legia Varsjá í Póllandi í dag.
Legia Varsjá hafði betur í fyrri viðureign liðanna á Kópavogsvellinum í síðasta mánuði, 3:1, þar sem Sindri Þór Ingimarsson skoraði mark Blikanna.