Breiðablik hefur samið við belgíska knattspyrnumanninn Jonathan Hendrickx og mun hann spila með liðinu á komandi keppnistímabili.
Hendrickx spilaði með FH árin 2015 og 2016 og varð Íslandsmeistari bæði árin. Hann byrjaði tímabilið í Hafnarfirðinum í ár en gekk til liðs við portúgalska B-deildar liðið Leixoes á miðju sumri. Hann er nú kominn aftur til landsins.
Hendrickx er 23 ára gamall og leikur jafnan í stöðu hægri bakvarðar, en hann kemur til landsins 1. desember og hefur þá æfingar með Blikum.