Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Norðmönnum í vináttuleik á La Manga á Spáni klukkan 17 í dag að íslenskum tíma.
Einn nýliði er í byrjunarliðinu en það er Anna Rakel Pétursdóttir sem leikur með Íslandsmeisturum Þórs/KA.
Byrjunarliðið lítur þannig út:
Markvörður:
Sandra Sigurðardóttir
Varnarmenn:
Sif Atladóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
Miðjumenn:
Anna Rakel Pétursdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Andrea Rán Hauksdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Rakel Hönnudóttir
Framherjar:
Sandra María Jessen
Fanndís Friðriksdóttir