Mist til Fjölnis

Mist Þormóðsdóttir Grönvold.
Mist Þormóðsdóttir Grönvold. Ljósmynd/Fjölnir

Kvennalið Fjölnis í knattspyrnu hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í sumar en Mist Þormóðsdóttir Grönvold er gengin í raðir Grafarvogsliðsins frá KR.

Mist er 19 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar. Hún hefur spilað 31 leik í efstu deild en tvö undanfarin ár hefur hún spilað með liði KR. Mist á baki 7 leiki með U19 ára landsliðinu og 2 leiki með U17 ára landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert