Íslandsmeistarar Þór/KA unnu sinn fyrsta leik í Lengjubikar kvenna í fótbolta í kvöld. Þór/KA vann þá ÍBV, 2:1, á gervigrasinu á Leiknisvelli.
ÍBV komst yfir með marki á 11. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Lára Einarsdóttir jafnaði á 59. mínútu og Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði sigurmarkið á 71. mínútu.
Arna gekk á dögunum í raðir uppeldisfélagsins, Þór/KA, eftir ótrúlega dvöl hjá Verona á Ítalíu, en hún lék með Val í tvö tímabil, þar á undan.
Þór/KA er í 3. sæti riðilsins með fjögur stig eftir fjóra leiki, en ÍBV er með þrjú stig eftir þrjá leiki. Valskonur eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki á toppnum.