Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson hefur samið við Keflvíkinga um að leika með þeim á komandi keppnistímabili en hann kemur til þeirra frá Gent í Belgíu.
Dagur, sem verður 18 ára í maí byrjun, er sóknartengiliður sem ólst upp hjá Haukum og lék sex leiki með þeim í 1. deildinni 2016, þá aðeins sextán ára gamall, en fór síðan til Belgíu. Hann á að baki 12 leiki fyrir U17 ára landslið Íslands.
Dagur Dan Þórhallsson (2000) hefur skifað undir samning hjá Keflavík en hann kemur frá Gent í Belgíu. Spennandi sumar framundan 🇮🇸👏 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/w6FEtf5cTX
— Total Football (@totalfl) April 21, 2018