Kristrún komin heim

Kristrún Rut Antonsdóttir.
Kristrún Rut Antonsdóttir. Ljósmynd/Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við miðjumanninn Kristrúnu Rut Antonsdóttur um að spila með félaginu í sumar. Þetta kemur fram á vef félagsins.

Kristrún, sem var valin leikmaður ársins á Selfossi á síðasta keppnistímabili, hélt utan til Ítalíu síðasta haust og samdi við Chieti sem leikur í B-deildinni. Hún spilaði 17 leiki fyrir Chieti og skoraði 5 mörk en tímabilinu á Ítalíu lauk um miðjan maí.

Kristrún lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Selfoss árið 2012 en hún hefur leikið 83 leiki fyrir félagið, þar af 47 í Pepsi-deildinni.

 „Við fögnum því mjög mikið að Kristrún hafi ákveðið að spila með okkur í sumar. Hún hefur verið lykilmaður í okkar liði og kemur núna reynslunni ríkari heim frá Ítalíu. Hún er með Selfosshjartað á réttum stað og kemur til með að styrkja okkur mikið í baráttunni í Pepsi-deildinni. Við gleðjumst yfir því að hún sé komin heim,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss á vef félagsins.

Selfoss hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í Pepsi-deildinni. Liðið hefur ekki náð að skora mark en hefur fengið á sig 10. Selfoss tekur á móti FH annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert