Í morgun var dregið í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Stjarnan, FH og ÍBV voru fulltrúar Íslands að þessu sinni.
Stjarnan mætir Nömme Kalju frá Eistlandi og fer fyrri leikurinn fram í Garðabænum.
FH mætir FC Lahti frá Finnlandi og mun fyrri leikurinn fara fram í Finnlandi.
ÍBV fékk norska liðið Sarpsborg og verður fyrri leikurinn spilaður í Vestmannaeyjum.
Fyrri leikirnir fara fram þann 12. júlí en þeir seinni 19.júlí.