Leiknir Reykjavík tók á móti Selfossi í áttundu umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir heimamenn því Gilles Ondo kom Selfyssingum yfir strax á 2. mínútu leiksins og staðan því 1:0 í hálfleik.
Sólon Breki Leifsson jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn á 67. mínútu og lokatölur því 1:1 í Breiðholti í kvöld. Leiknir R. er í tíunda sæti deildarinnar með 7 stig eftir fyrstu átta umferðirnar en Selfoss er í níunda sætinu með 8 stig. Leiknir R. mætir Þrótti R. í Laugardalnum í næstu umferð en Selfoss fær Þór í heimsókn.