Spænski miðjumaðurinn Nacho Gil framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnudeild Þórs á Akureyri og mun því leika með liðinu út næsta tímabil.
Gil gekk til liðs við Þór í vor og hefur hann leikið 14 leiki í sumar í deild og bikar, skorað í þeim þrjú mörk. Gil er 25 ára gamall og kom til Þórsara frá Cd Mostoles URJC.