Haukar tóku á móti Njarðvík í 16. umferð Inkasso-deildar karla í knattspyrnu í Hafnarfirði í kvöld en leiknum lauk með 2:1-sigri Njarðvíkinga sem þar með komust upp fyrir Haukana í fallbaráttunni.
Brynjar Freyr Garðarsson kom Njarðvík yfir á 40. mínútu en á 67. mínútu fékk Gunnar Gunnarsson að líta beint rautt spjald fyrir brot á Kenneth Hogg.
Aron Freyr Róbertsson jafnaði metin fyrir Hauka á 87. mínútu en það var svo Arnór Björnsson sem tryggði Njarðvík sigur með marki, mínútu síðar, og lokatölur því 2:1 í Hafnarfirðinum í kvöld.
Haukar eru dottnir niður í tíunda sæti deildarinnar með 14 stig og eru tveimur stigum frá fallsæti. Njarðvík er hins vegar komið í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig en þetta var annar sigurleikur liðsins í síðustu fjórum leikjum.