KSÍ hefur á vef sínum skráð 3:0 sigur Völsungs gegn Hugin í 2. deild karla í knattspyrnu og þar með eiga Völsungar enn þá möguleika á að vinna sér sæti í Inkasso-deildinni.
Áfrýjunardómstóll KSÍ ákvað að leikurinn skyldi endurtekinn en leikur liðanna í ágúst var dæmur ógildur en honum lauk með 2:1-sigri Hugins. Leikurinn var settur á í gær en ekkert varð af honum. Huginsmenn mættu á Seyðisfjarðarvöll, eftir að hafa tilkynnt KSÍ í gærmorgun, að völlurinn væri óleikfær. KSÍ færði því leikinn á Fellavöll, sem er varavöllur Hugins, og þangað mættu leikmenn Völsungs og dómarar leiksins.
Þegar einni umferð er ólokið í 2. deildinni er Afturelding í toppsætinu með 43 stig, Grótta er í öðru sæti með 42, Vestri 41 og Völsungur 40. Tvö af þessum liðum berjast um sæti í Inkasso-deildinni. Huginn er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 6 stig. Baráttan um að forðast fall með liði Hugins stendur á milli Leiknis Fáskrúðsfjarðar, sem hefur 19 stig, Tindastóls og Hattar, sem hafa bæði 21 stig.
Í lokaumferðinni mætast:
Leiknir F - Víðir
Þróttur V - Fjarðabyggð
Grótta - Huginn
Tindastóll - Völsungur
Kári - Vestri
Höttur - Afturelding