Agla María Albertsdóttir, landsliðskona úr Breiðabliki, er besti ungi leikmaður Pepsi-deildar kvenna 2018 samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Hún varð í þriðja sæti í M-gjöfinni í heild með 16 M.
Agla María og samherji hennar Alexandra Jóhannsdóttir eru í nokkrum sérflokki meðal ungu leikmannanna, þar sem miðað er við þær sem eru 21 árs og yngri, fæddar 1997 og síðar. Agla María er 19 ára gömul og Alexandra er 18 ára.
Breiðablik og Þór/KA, tvö efstu lið deildarinnar, eiga þrjá leikmenn hvort í unga úrvalsliðinu. Karólína Jack, kantmaður úr HK/Víkingi, er yngst allra í liðinu, 17 ára gömul.
Sjá heildarniðurstöðuna í M-gjöf Morgunblaðsins 2018 og val á liði ársins, úrvalsliði erlendra leikmanna, úrvalsliði ungra leikmanna, úrvalsliði eldri leikmanna og fimm bestu leikmenn í hverju liði Pepsi-deildar kvenna 2018 í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag