Sænski varnarmaðurinn Sebastian Hedlund hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu til næstu tveggja ára. Valsmenn tilkynntu þetta í dag.
Heldund gekk í raðir Vals á miðju tímabili síðastliðið sumar og var fastur hlekkur í vörn liðsins sem vann Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Hedlund á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Svíþjóðar og þá var hann einnig valinn í Ólympíulið Svía 2016. Hann hafði áður leikið með liðum á borð við GAIS; Kalmar og Schalke í þýsku 1. deildinni.
Hedlund spilaði tíu leiki með Valsmönnum í sumar, en Valur vann sex þeirra, gerði þrjú jafntefli og tapaði aðeins einum.