Knattspyrnusamband Íslands hóf í hádeginu sölu á ársmiðum á heimaleiki íslenska karlalandsliðsins í undankeppni Evrópumótsins sem hefst í mars á næsta ári.
Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið frábærar en þeir 1.000 miðar sem voru settir i sölu eru uppseldir.
Í tilkynningu á vef KSÍ segir að í athugun sé að bæta við fleiri ársmiðum í sölu og mun tilkynning vegna þess koma á morgun.
Heimaleikir íslenska landsliðsins:
Laugardagur 8. júní Ísland - Albanía (13:00)
Þriðjudagur 11. júní Ísland - Tyrkland (18:45)
Laugardagur 7. september Ísland - Moldóva (16:00)
Föstudagur 11. október Ísland - Frakkland (18:45)
Mánudagur 14. október Ísland - Andorra (18:45)
👀 Þeir 1000 ársmiðar sem fóru í sölu í hádeginu eru uppseldir. Í athugun er að bæta við fleiri ársmiðum og kemur tilkynning vegna þess á morgun.#fyririslandhttps://t.co/DsTrU2FPTb
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) December 11, 2018