Sóknarmaðurinn Jón Gísli Ström er genginn til liðs við Fjölni og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð.
Jón Gísli kemur til Fjölnismanna frá ÍR-ingum en hann hefur skorað 73 mörk í 174 leikjum með Breiðholtsliðinu.
Fjölnir féll úr Pepsi-deildinni í haust en ÍR-ingar féllu úr Inkasso-deildinni.