Bakvörðurinn Nemanja Latinovic framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnudeild Grindavíkur um tvö ár.
Nemanja eða Nemó, er uppalinn hjá Grindavík og er hann búinn að spila 26 leiki með liðinu og skora í þeim tvö mörk. Eitt markanna kom í Pepsi-deildinni og hitt í bikarnum.
Hann lék 15 deildarleiki fyrir Grindavík síðasta sumar og skoraði í þeim eitt mark.