Arnari Þór Viðarssyni hefur verið sagt upp störfum hjá belgíska knattspyrnuliðinu Lokeren samkvæmt sjónvarpsfréttum í Belgíu í kvöld.
Arnar hefur undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari liðsins en þjálfaranum, Trond Johan Sollied frá Noregi, var einnig sagt upp. Sollied fékk ekki langan tíma því hann var ráðinn til starfa í lok október. Glen De Boeck tekur við liðinu.
Arnar tók við liðinu tímabundið þegar Peter Maes var rekinn í október en það stóð einungis í tvo daga.
Arnar er nýráðinn þjálfari U-21 árs landsliðs karla í knattspyrnu. Hann er uppalinn hjá FH en hefur verið lengi hjá Lokeren í Belgíu, áður sem leikmaður.
Ekki hefur náðst í Arnar í dag vegna málsins.