Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu bar sigurorð af Skotum 2:1 í vináttulandsleik sem fram fór á La Manga á Spáni í dag.
Staðan var markalaus í hálfleik en Elín Metta Jensen úr Val kom Íslendingum yfir á 51. mínútu og hún bætti svo við öðru marki á 54. mínútu með sínu tíunda landsliðsmarki. Skotar minnkuðu muninn þegar Lana Clelland skoraði á lokamínútu leiksins en Skotar tryggðu sér sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Frakklandi í sumar.
Þetta var fyrsti leikur íslenska landsliðsins undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar sem tók við þjálfun landsliðsins af Frey Alexanderssyni í haust. Alexandra Jóhannsdóttir og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir markvörður léku sinn fyrsta A-landsleik í dag en þær komu báðar inn á sem varamenn seint í leiknum.
Lið Íslands: (4-5-1): Mark: Sonný Lára Þráinsdóttir (Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir 74.) Vörn: Ingibjörg Sigurðardóttir (Elísa Viðarsdóttir 86.), Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atladóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir (Anna Rakel Pétursdóttir 74.) Miðja: Agla María Albertsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Elín Metta Jensen, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Alexandra Jóhannsdóttir 86.), Fanndís Friðriksdóttir (Selma Sól Magnúsdóttir 62.) Sókn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Svava Rós Guðmundsdóttir 62.)
Næsta verkefni landsliðsins verður þátttaka liðsins á Algarve Cup í Portúgal. Ísland mætir Kanada 27. febrúar og Skotlandi 4. mars.