Selfoss vann sannfærandi 3:0 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu á Selfossvelli í kvöld.
Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik tóku Selfyssingar leikinn yfir í seinni hálfleiknum og uppskáru tvö mörk frá Hólmfríði Magnúsdóttur og eitt frá Magdalenu Reimus.
Stjörnukonur voru algjörlega lánlausar upp við mark Selfoss en þær hafa ekki skorað deildarmark síðan í maí. Í kvöld var ekkert í spilunum sem bendi til þess að það myndi breytast.
Selfoss er í 4. sæti deildarinnar með 16 stig en Stjarnan í 5. sæti með 10 stig.
Selfoss | 3:0 | Stjarnan | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjarnan) á skot framhjá Bjartsýnistilraun utan af velli. Ekki nálægt markinu. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |