FH mun mæta Sligo Rovers og Stjarnan mætir Bohemians í fyrstu umferð nýrrar Evrópukeppni, Sambandsdeildar Evrópu. Breiðablik mun þá mæta liði frá Lúxemborg. Dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss rétt í þessu.
Bæði Sligo Rovers og Bohemians eru frá Írlandi. Í báðum tilvikum munu fyrri leikir FH og Stjörnunnar fara fram á Íslandi.
Breiðablik var einnig í pottinum og dróst gegn Racing FC Union Lúxemborg sem er eins og nafnið gefur til kynna frá Lúxemborg. Fer fyrri leikurinn fram þar í landi.
Drátturinn:
FH – Sligo Rovers
Stjarnan – Bohemians
Racing FC Union Lúxemborg – Breiðablik
Fyrr í dag dróst Valur gegn Dinamo Zagreb í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. Falli Valur úr leik þar fer liðið í aðra umferð Sambandsdeildarinnar.