Skagamenn stóðust KA ekki snúning þegar liðin mættust á Akranesi í kvöld og þurftu að sætta sig við 0:2 tap, sem sendir þá niður í botnsæti deildarinnar á meðan Akureyringar tóku þriðja sætið af KR. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og í lokin fengu leikmaður ÍA og liðsstjóri KA rautt.
Bæði lið reyndu að ná undirtökunum í byrjun og ekki laust við Skagamenn væru að ná eitthvað af þeim en KA-menn voru viðbúnir og sóttu sjálfir á mörgum mönnum. Á 11. mínútu skilaði það sér þegar Dusan Brkovic skoraði af stuttu færi þegar hann elti boltann er Dino Hodzic í marki Skagamanna hélt ekki hörkuskoti Nökkva Þeys Þórissonar af vítateigslínunni.
Skagamenn voru ekki hættir að reyna ná tökum á leiknum en KA-menn, komnir með eitt mark, voru yfirvegaðir og náðu oft þungum sóknum. Þyngsta sóknin var þó við mark á KA þegar Skagamenn fengu tvær hornspyrnur í röð og pressuðu gestina aftur að marklínunni en þeim tókst einhvern veginn að koma boltanum út úr þvögu - tvisvar.
Framan af síðari hálfleik var ÍA í mesta basli í vörninni en tókst þó að koma að mestu í veg fyrir hættuleg færi gestanna. Það var ekki fyrr en eftir korter að líf fór að færast í sóknarleikinn.
Engu að síður áttu KA-menn besta færið þegar Daníel Hafsteinsson skaut framhjá úr miðjum vítateig sendingu Ásgeirs Sigurgeirssonar, gott færi og ótrúlegt að nýta það ekki.
Ásgeiri brást sjálfum ekki bogalistin á 69. mínútu þegar hann var snöggur til þegar boltinn hrökk af varnarmönnum ÍA eftir skot Hallgríms Mar Steingrímssonar og skaut í stöng og inn. Flott afgreiðsla og 2:0.
Aðeins örlaði á að KA-menn ætluðu að halda fengnum hlut en Elfar Árni Aðalsteinsson fékk þó opið færi á 81. mínútu en tókst að láta verja frá sér.
Undir lokin var ekkert eftir nema harkan og Óttar Bjarni Guðmundsson fékk rautt fyrir mjög gróft brot á Hallgrími Mar Steingrímssyni sem hélt þó áfram leik og liðsstjóri KA fékk rautt.