Gummi Ben tjáði sig um brottrekstur Arnars

Arnar Þór Viðarsson stýrði Íslandi í síðasta skipti gegn Liechtenstein.
Arnar Þór Viðarsson stýrði Íslandi í síðasta skipti gegn Liechtenstein. Ljósmynd/Alex Nicodim

Guðmundur Benediktsson, fyrrverandi knattspyrnumaður og þjálfari og núverandi íþróttafréttamaður á Stöð 2, tjáði sig um brottrekstur Arnars Þórs Viðarssonar í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.

Arnar var í gær rekinn sem landsliðsþjálfari karlalandsliðsins, skömmu eftir að Guðmundur lét óánægju sína í ljós vegna ummæli þjálfarans í garð sonar síns, Alberts Guðmundssonar.

Þrátt fyrir það kom brottreksturinn Guðmundi á óvart. „Ákvörðunin og tímasettningin. Ég átti ekki von á þessu,“ sagði Guðmundur.

Arnar stýrði Íslandi til 7:0-útisigurs á Liechtenstein í lokaleik sínum sem þjálfari landsliðsins, en tapaði þar á undan illa á útivelli gegn Bosníu, 0:3.

Hlaðvarpið má m.a. nálgast með því að smella hér. 

Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson. Ljósmynd/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert