Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu etur kappi við enska landsliðið í 16-liða úrslitum Evrópumótsins á mánudag. Hornfuglinn Nelson er handviss um að enska liðið fari með sigur af hólmi.
Ísland lenti í 2. sæti í F-riðli Evrópumótsins en liðið gerði jafntefli við Portúgal og Ungverjaland áður en liðið vann magnaðan 2:1-sigur á Austurríki í lokaleiknum.
Ísland mætir Englandi í Nice á mánudag. Íslenska liðinu hefur aldrei tekist að sigra það enska og engin breyting verður þar á samkvæmt hornfuglinum Nelson.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndskeið þar sem Nelson spáir í spilin en þetta er gert á vegum Eurosport.