Sviss mun leika án hins hávaxna miðvarðar, Rahel Kiwic, þegar liðið mætir Íslandi í annarri umferð riðlakeppninnar í lokakeppni EM í knattspyrnu kvenna á Stadion De Vijverberg í Doetinchem í Hollandi síðdegis í dag.
Kiwic tekur út leikbann í leiknum gegn Íslandi þar sem henni var vísað af velli með rauðu spjaldi í 1:0-tapi Sviss gegn Austurríki í fyrstu umferð riðlakeppninnar.
Jana Brunner leysti Kiwic af hólmi í leiknum gegn Austurríki og líklegt er að Brunner muni leika í hjarta varnarinnar gegn Íslandi í dag við hlið Caroline Abbé.
Leikur Íslands og Sviss hefst klukkan 16.00 í dag og mun Sindri Sverrisson, blaðamaður mbl.is, sem staddur er í Hollandi lýsa leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.