Manchester United gæti orðið af 23 milljónum punda ef liðinu tekst ekki að komast í Meistaradeildina tvö ár í röð. Þetta er innifalið í þeim samningi sem félagið gerði við þýska íþróttavöruframleiðandann Adidas en samningurinn sem enska liðið gerði við Adidas var sá stærsti sinnar tegundar frá upphafi. Þetta kemur fram í frétt enska dagblaðsins The Telegraph um málið.
Liðið þarf því að komast í Meistaradeildina fyrir leiktíðina 2017-2018 þar sem samingurinn tekur ekki í gildi fyrr en eftir þetta tímabil. Ef ekki fara tekur liðsins vegna samingins frá 75 milljónum punda á ári, niður í 52,5 milljónir sem er 30% lækkun.