Manchester United hefur fengið tilboð frá tveimur félögum í mexíkóska framherjann Javier Hernandez.
Félögin sem um ræðir eru spænska liðið Valencia og ítalska meistaraliðið Juventus. Hernandez gekk í raðir Manchester United frá Guadalajara árið 2010 en hlutskipti hans hjá United-liðinu hefur verið að mestu að sitja á bekknum en ósjaldan hefur hann þó komi inná og skorað mikilvæg mörk fyrir félagið.