Cleverley lánaður til Aston Villa

Tom Cleverley leikur með Aston Villa, að minnsta kosti fram …
Tom Cleverley leikur með Aston Villa, að minnsta kosti fram í janúar. AFP

Tom Cleverley mun leika með Aston Villa í vetur en í dag, mörgum klukkustundum eftir lokun félagaskiptagluggans, var lánasamningur á milli United og Villa loks samþykktur af ensku úrvalsdeildinni.

Cleverley verðru á láni hjá Villa fram í janúar og er klásúla í samningnum um að félagið geti svo keypt hann fyrir 7,5 milljónir punda.

Villa gerði United tilboð upp á 8 milljónir punda í síðustu viku en talið er að launakröfur Cleverleys hafi komið í veg fyrir félagaskipti. Everton reyndi þá að fá miðjumanninn enska en þegar það gekk ekki upp stukku forráðamenn Villa til á síðustu stundu og báðu um að fá hann að láni.

Cleverley á minna en ár eftir af samningi sínum við United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert