Crouch tryggði Stoke sigur

Peter Crouch gnæfir yfir aðra í vítateig Newcastle í kvöld …
Peter Crouch gnæfir yfir aðra í vítateig Newcastle í kvöld og skallar boltann í markið. AFP

Peter Crouch tryggði Stoke sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar hann skoraði eina mark leiksins á 15. mínútu á Britannia Stadium, heimavelli Stoke-liðsins.

Með sigrinum færðist Stoke upp í 11. sæti deildarinnar með 8 stig að loknum sex leikjum. Newcastle er hinsvegar í næst neðsta sæti deildarinnar með 3 stig. Alan Pardew, knattspyrnustjóri liðsins, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en stuðningsmenn Newcastle sendu honum tóninn meðan leikurinn stóð yfir í kvöld. Pardew er talinn mjög valtur í sessi. 

Stuðningsmenn Newcastle eru ekki ánægðir með Alan Pardew, knattspyrnustjóra liðsins.
Stuðningsmenn Newcastle eru ekki ánægðir með Alan Pardew, knattspyrnustjóra liðsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert