Spænski framherjinn Diego Costa verður ekki með Chelsea annað kvöld þegar liðið fær Maribor í heimsókn í Meistaradeildinni.
Costa, sem hefur raðað inn mörkunum fyrir Chelsea á tímabilinu, glímir við meiðsli og staðfesti José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea í dag að hann muni ekki spila. Þá eru þeir Andre Schurrle og Ramires báðir tæpir að sögn stjórans.