Lamela: Hef skorað svona áður

Erik Lamela á fullri ferð í leiknum við Asteras í …
Erik Lamela á fullri ferð í leiknum við Asteras í gærkvöld. AFP

Argentínski knattspyrnumaðurinn Erik Lamela segir að markið umtalaða sem hann skoraði fyrir Tottenham gegn Asteras Tripolis í Evrópudeildinni í  gærkvöld sé hans besta á ferlinum en þó ekki það fyrsta sem hann skorar á þennan hátt.

Lamela skoraði með svokallaðri „rabona-spyrnu“ en hann skaut viðstöðulaust frá vítateig með því að smella vinstri fætinum afturfyrir hægri fótinn og boltinn steinlá í marki Grikkjanna.

Ótrúlegt mark hjá Lamela - myndskeið.

„Ég hef áður skorað svona mark en það  gerði ég þegar ég spilaði með unglingaliði River Plate heima í Argentínu. Þetta var þó ekki efst í huga mér þegar boltinn barst til mín - ég var ekki búinn að ákveða fyrirfram að spyrna á þennan hátt. Það bara gerðist svona skyndilega. Besta markið mitt á ferlinum? Já, það held ég,“ sagði Lamela við London Evening Standard.

Hann skoraði tvö marka Tottenham sem vann stórsigur, 5:1, en Harry Kane gerði hin þrjú mörkin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert