Frank Lampard hrósaði stuðningsmönnum Chelsea eftir leik Chelsea og Manchester City en þessi goðsögn Chelsea kom inná fyrir City í seinni hálfleiknum á Stamford Bridge í kvöld.
Liðin skildu jöfn, 1:1, og þar með heldur Chelsea fimm stiga forskoti á Englandsmeistara Manchester City í toppsætinu.
„Ég var svolítið stressaður en ég var virkilega ánægður með viðtökurnar sem ég fékk hjá stuðningsmönnum Chelsea. Þeir voru frábær. Það var ánægjulegt að snúa aftur á gamla heimavöllinn og hitta allt þetta góða fólk sem ég hef kynnst í gegnum tíðina hjá Chelsea.
Í síðustu leikjum þá höfum við misst taktinn en mér fannst við standa okkur vel í þessum leik. Ég held að hvorugt liðið geti verið óánægt með þessi úrslit,“ sagði Lampard eftir leikinn.