Enski landsliðsmaðurinn Daniel Sturridge greindi frá því á samskiptamiðlum í dag að aðgerð
sem hann gekkst undir hafi verið vel heppnuð.
Sturridge sem leikur með Liverpool fór í aðgerð á mjöm og verður ekki meira með á tímabilinu. Hann lék síðast með Liverpool í 8-liða úrslit um bikarkeppninnar hinn 8. apríl.
Aðgerðin var framkvæmd í New York og útlit er fyrir að hann verði orðinn leikfær þegar næsta tímabil hefst en Sturridge tók aðeins þátt í 18 leikjum í vetur.