Samkvæmt fréttamiðlinum The Independent hefur Manchester United boðið 50 milljónir punda í Þjóðverjann Thomas Müller, leikmann Bayern München.
Müller lék undir stjórn Louis van Gaal hjá Bayern og van Gaal hefur verið á höttunum eftir Müller síðan hann tók við sem knattspyrnustjóri Manchester United í fyrrasumar. Müller segir að það sé ánægjulegt að heyra af áhuga United en að hann vilji vera um kyrrt í bili.
„Þegar boðið er í mann veltir maður því alltaf fyrir sér. Það er heiður þegar stórlið hefur áhuga á mér en mér líður vel hjá Bayern og ég er á samning til ársins 2019,“ sagði Müller.