Gylfi Þór Sigurðsson verður í eldlínunni með sínum mönnum í Swansea á morgun þegar þeir taka á móti Manchester United á Liberty-vellinum í Swansea. Gylfi og félagar fögnuðu sigri í báðum leikjunum gegn United á síðustu leiktíð, eitt liða, og skoraði Gylfi sigurmarkið á Old Trafford í fyrstu umferðinni.
Louis van Gaal stýrir liði United í 50. leiknum, en Manchester-liðið hefur átt í erfiðleikum með velska liðið og hefur aðeins unnið það tvisvar sinnum í síðustu 12 leikjum liðanna.
Manchester City, sem er eitt í efsta sæti með fullt hús, fær nýliða Watford í heimsókn í dag, en hádegisleikurinn er viðureign Newcastle og Arsenal, Liverpool tekur á móti West Ham og Englandsmeistarnir í Chelsea eiga í höggi við Crystal Palace á Stamford Bridge.