Derby County tyllti sér á topp ensku B-deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið hafði betur í toppslagnum gegn Hull á KC Stadium í Hull.
Jacob Butterfield sá um að tryggja Derby sigurinn en hann skoraði bæði mörk liðsins í fyrri hálfleik.
Derby er með 36 stig í efsta sætinu, Hull hefur 35 eins og Brighton sem á leik til góða gegn Birmingham á morgun.