Simon Mignolet, markvörður Liverpool, skrifaði fyrir stuttu undir fimm ára samning við Liverpool en margir stuðningsmenn Liverpool skilja lítið í því þessa dagana. Sér í lagi ef tölfræði kappans er skoðuð en hún er vægast sagt slök.
Af síðustu 19 skotum sem Mignolet hefur fengið á sig í ensku úrvalsdeildinni hafa 12 skot farið inn. Það þýðir að 63% af síðustu 19 skotum mótherjanna sem rata á markið fara í netið hjá Belganum.
Of the last 19 shots on target that Mignolet has faced in PL, he's conceded 12 goals. 63% of shots on target = goal pic.twitter.com/WnAqgeeXtV
— LFC Stats (@LFCData) February 6, 2016